
Hugarró í hádeginu í júní
Rólegt yoga 60+ kl. 11.00 (60 mín)
Yoga Nidra & tónheilun kl. 12.00 (40 mín)
Kennarar Ásta Arnardóttir, Sólrún Kamban, Ólafur Guðmunds, Nicole Keller
TILBOÐ JÚNÍ 12.000 - innifalið hugleiðslukvöld á mið kl. 20.00
Júní passinn gildir í þessa tíma
Rólegt yoga 60 + þrið og fimmt kl. 11.00 (60 mín)
Yoga nidra & tónheilun þrið og fimmt kl. 12.00 (40 mín)
Núvitund hugleiðslukvöld mið kl. 20.00 (60 mín)
Hugarró í hádeginu nærandi yogatími og djúpslökun á eftir tilvalið að taka samliggjandi tíma en líka hægt að mæta bara í yoga eða bara í djúpslökun
Langar þig að hlúa að taugakerfinu ? Fá djúpa og nærandi hvíld og endurheimt lífsorku ? Skapa jafnvægi og bæta svefninn ?
Nidra er aðgengileg og áhrifrík leið til að skapa jafnvægi og losa um streitu og spennu, neikvæð hugsanamynstur, kvíða og ofvirkni, depurð og vanvirkni. Hún hefur reynst mörgum vel til að tengja dýpra við ásetning og skapandi verkefni í daglegu lífi. Nidra hefur einnig reynst námsfólki frábærlega vel og gert námið léttara og árangursríkara.
Heilsufræði ýmiskonar benda á að streita geti verið orsök margra sjúkdóma eða ójafnvægis í líkamanum t.d. meltingartruflana, hormonaójafnvægis, þunglyndis og kvíða. Rannsóknir sýna að yoga nidra er áhrifarík iðkun til að róa taugakerfið, skapa jafnvægi og opna fyrir jákvæða þáttöku í lífinu.
Yoga nidra er aðgengileg og áhrifarík iðkun, þú liggur undir teppi, lætur fara vel um þig og nýtur leiðsagnar sem leiðir inní djúpa kyrrð og hvíld.
Tónheilun skapar jafnvægi í orkusviði líkamans og hefur djúpstæð áhrif til heilunar. Gong og kristalskálar mynda saman binaural hljóðbylgjur sem skapa jafnvægi á milli hægra og vinstra heilahvels. Tónbað í hárri tíðni kristalskálanna skapar vellíðan.
Yoga nidra tónheilun er einstaklega áhrifarík leið til að meðhöndla taugakerfið, vinda ofan streitu og spennu og skapa jafnvægi.
Iðkunin:
Losar um streitu
Minnkar kvíða
Róar taugakerfið
Skapar jafnvægi
Bætir svefn
Eflir einbeitingu
Gefur hugarró
Eykur vellíaðan
Bætir minnið
Við erum með dýnur, teppi og púða á staðnum.
Sjá nánri upplýsingar um kennarana hér