Kirtan

með Glimmer Mysterium

7. maí 20.00 - 22.00

Verð 4900

Posi við innganginn

Lyftum andanum og heiðrum lífið með helgum söngvum hjartans.

Möntrusöngur hækkar orkutíðnina, nærir hjartað, róar taugakerfið og gefur hugarró. Orðið mantra tilheyrir hinu forna tungumáli sanskrit; man þýðir hugur og tra vernd; mantra verndar hugann og hækkar orkutíðnina. Samsöngur eykur þessi áhrif og gefur enn dýpri virkni fyrir taugakerfið.

Hið ástkæra Glimmer Mysterium Blissband mætir til leiks og tjúnar inn möntruseiðinn

Örn Ellingssen trommur, söngur

Arnmundur Ernst gítar, söngur

Andri Hilmarsson gítar

Dhvani Ellingssen bjöllur og söngur

Halldór Sigvaldason sítar

Hilmar Örn Agnarsson bassi, harmonium

Nicole Keller harmonium og söngur

Harpa Arnardóttir bjöllur og söngur

Ásta Arnardóttir söngur

…ásamt ykkur ástkæru öll