Rödd hjartans tónheilun

Raddhringur, tónheilun, möntrusöngur

Miðvkudag 25. júní

Kl. 18.00 - 19.45

Með Ástu Arnardóttur

Verð 4.900 - innifalinn kakóbolli

Við hefjum stundina á ljúffengum, næringarríkum og hjartaopnandi kakóbolla. Ásta leiðir raddhring og tónheilun með kristalskálum og gong sem gefur djúpa slökun og skapar jafnvægi í orkusviði líkamans. Ljúkum á möntrusöng sem verndar hugann og lyftir orkunni.

  • Willkapacha kakóbolli

  • Raddhringur

  • Tónheilun

Verið hjartanlega velkomin og þau sem hafa áhuga eru velkomin í núvitund hugleiðslu í kjölfarið kl. 20.00 - 21.00

  • Hugleiðsla kl. 20.00

Ásta Arnardóttir er eigandi Yogavin og hefur kennt yoga frá 1999. Hún er einn af stofnendum Félags um vipassana hugleiðslu og hefur kennt og leitt kyrrðarvökur á vegum félagsins frá 2011. Ásta hefur kennt yogakennaranám frá 2010. Ásta leggur áherlsu á persónulega og skapandi iðkun og hefur kennt fjöldamörg námskeið í yoga, hugleiðslu og skapandi lífsstíl síðastliðin 25 ár.