Rödd hjartans þakkargjörð

Tónheilun, raddhringur og möntrusöngur

Miðvikudag 25. júní

Kl. 18.00 - 19.45

Með Ástu Arnardóttur

Verð 3.900 - innifalinn kakóbolli

Þakkargjörð og heilunarhringur hefjum stundina á ljúffengum kakóbolla, fínstillum taugakerfið með raddhring og tónheilun með kristalskálum og gong sem hækka orkutíðnina og skapa jafnvægi og ljúkum á möntrusöng.

  • Willkapacha kakóbolli

  • Raddhringur

  • Tónheilun

  • Möntrusöngur

Verið hjartanlega velkomin

Ásta Arnardóttir er eigandi Yogavin og hefur kennt yoga frá 1999. Hún er einn af stofnendum Félags um vipassana hugleiðslu og hefur kennt og leitt kyrrðarvökur á vegum félagsins frá 2011. Ásta hefur kennt yogakennaranám frá 2010. Ásta leggur áherlsu á persónulega og skapandi iðkun og hefur kennt fjöldamörg námskeið í yoga, hugleiðslu og skapandi lífsstíl síðastliðin 25 ár.