Kynningarkvöld

Yoga til heilunar 200 tíma yogakennaranám

Fimmtudag 15. maí

Kl. 20.00 - 22.00

Með Ástu Arnardóttur

Öll velkomin frítt og þarf ekki að skrá sig

Ertu að spá í yogakennaranámið ? Langar þig í umbreytandi yogaferðalag ?

Kynningarkvöldið er nærandi kvöldstund með Ástu Arnardóttur og tilvalið fyrir öll sem vilja kynna sér betur Yoga til heilunar 200 tíma yogakennaranám sem hefst 8. ágúst

  • Yogaflæði

  • Yoga nidra

  • tónheilun

  • og allt um nýja yogakennaranámið

Það þarf ekki að skrá sig bara mæta

Sjá nánari upplýsingar um námið hér

Ásta Arnardóttir er eigandi Yogavin og hefur kennt yoga frá 1999. Hún er einn af stofnendum Félags um vipassana hugleiðslu og hefur kennt og leitt kyrrðarvökur á vegum félagsins frá 2011. Ásta hefur kennt og þróað yogakennaranámið frá 2010 og útskrifað á annað hundrað yogakennara. Ásta leggur áherlsu á persónulega og skapandi iðkun og hefur kennt fjöldamörg námskeið í yoga, hugleiðslu og skapandi lífsstíl síðastliðin 25 ár.