Dansfögnuður

Fimmtudag 28. maí kl. 19.30 - 21.30

Með Ástu Arnardóttur

Verð 4.900 - innifalinn kakóbolli

Fögnum sumri með dansveislu

  • Cacau

  • Dans

  • Tónheilun

  • Möntrur

Við hefjum stundina á þakkarhring með ljúffengum hjartaopnandi kakóbolla.

Dansfögnuður í hárri tíðni og djúpum takti lífsins, hjartaopnandi, útrásargefandi, upplyftandi, sálartengjandi, djúppeppandi tónlist tendrar dansgleðina. Heiðrum lífið og mætum öll eins og við erum og dönsum inní sumarið.

Tónheilun og slökun með alkemiskum skálum og gong

Ljúfar möntrur í lokin

Ásta Arnardóttir leiðir kakóhring og tónheilun. Ásta hefur kennt yoga frá 1999 og stofnaði Yogavin 2014. Hún er með bakgrunn í leiklist og hefur haldið fjölbreytt námskeið í yoga, hugleiðslu, leiklist, spuna og skapandi lífstíl síðastliðin 35 ár. Ásta hefur kennt yogakennaranám frá 2010 og útskrifað á annað hundrað yogakennara. Hún er stofnfélagi í Félagi um vipassana hugleiðslu 2011 og hefur leitt kyrrðarvökur á vegum félagsins frá stofnun þess.

Gott að skrá sig til að við getum áætlað fjölda ljúffengra kakóbolla