Kyrrðarvaka
Heilandi máttur hvíldar
14. - 15. febrúar í Yogavin
með Ástu Arnardóttur
Nærandi iðkun yin yoga, núvitundar og yoga nidra
Djúp hvíld og endurheimt lífsorku.
Öll velkomin
Þau sem hafa lokið kyrrðarvöku geta tekið kennaranám
Einnig er mögulegt að hefja námið 19. febrúar á kyrrðarvöku í Skálholtsbúðum.
Heilandi máttur hvíldar
Yogavin
Fallegur yogasalur til iðkunar og setstofa þar sem boðið er uppá te og hádegishressingu sem er innifalin í verði.
Yogavin er á Grensásvegi 16, efstu hæð, gengið inn bakatil og næg bílastæði bakvið húsið
Ásta Arnardóttir
er eigandi Yogavin og hefur kennt yoga frá 1999. Hún lauk RYS 200 yogakennaranámi frá Kripalu Center for Yoga and Health 1999, Yin Yoga kennarnám Sarah Powers 2013, Total Yoga Nidra Teacher Training Uma og Nirlipta Tuli í Yogavin 2014 , 300 RYS Brahmaniyoga Level II Teacher Training Julie Martin 2016, Yoga Nidra Teacher training Matsyandra í Yogavin 2017, Pranayama Teacher Training, Matsyandra í Yogavin 2021.
Ásta er stofnfélagi Félags um vipassana hugleiðslu, situr í stjórn félagsins og hefur haldið kyrrðarvökur á þess vegum frá 2011. Hún hefur stundað vipassana hugleiðslu frá 1997 og farið reglulega á kyrrðarvökur (silent retreat) til Gaia House, Spirit Rock Meditation Center og IMS en þar tók hún þátt í 3 mánaðar kyrrðarvöku haustið 2013.
Ásta hefur kennt yogakennaranám frá 2010 og útskrifað á annað hundrað yogakennara. Hún hefur fjölbreytta verkfærakistu í farteskinu sem nýtist fjölbreyttum hópi iðkenda til aukinnar meðvitundar, bættrar heilsu og velsældar í daglegu lífi.
Kyrrðarvakan
Laugardag og sunnudag 8.00 - 16.00
Kyrrðarvakan er nærandi tími fyrir alla sem vilja hægja á og hlúa að líkama og sál á hjartnæman hátt í fallegu umhverfi. Með sjálfsmildi og alúð að leiðarljósi könnum við heilandi mátt hvíldar með iðkun yin yoga, hugleiðslu og yoga nidra.
Fléttað saman fræðslu og iðkun á skapandi og markvissan hátt þar sem þátttakendur fá beina reynslu af heilandi áhrifum yogaiðkunar, djúpri hvíld og endurheimt lífsorku.
Kennd grunntæknin í yin yoga, núvitund og yoga nidra. Fjallað um áhrif á líkama, taugakerfið, orkusvið og huga.
Hvatning til að heiðra þína leið til heilunar, innsæis og visku hjartans.
Kyrrðarvakan er haldin í þögn. Fléttað saman fræðslu og iðkun undir leiðsögn kennara.
Nærandi iðkun
Yin yoga
Yin yoga felur í sér meðvitaða hjartnæma hlustun og heildræna meðhöndlun á líkama, tilfinningum, huga og fíngerðari orkusviðum.
Með því að hægja á, dvelja í liggjandi og sitjandi stöðum í 5 – 20 mínútur gefst tækifæri að kynnast líkama, tilfinningum, huga og orkusviði betur. Hver staða er eins og stutt hugleiðsla þar sem iðkun núvitundar opnar fyrir aukna meðvitund.
Anatomiskt gefur hver staða þrýstinudd sem hefur áhrif á líffæri, djúpvefi, liðamót, bein, orubrautir og orkustöðvar. Iðkunin miðast að því að efla kærleiksríka nærveru og skapa jafnvægi og traust.
Kyrrðargöngur, vinyasa (yogaflæði) til mótvægist við yin þátt iðkunar.
Núvitund
Núvitundar (mindfulness) er aðgengileg og áhrifarík iðkun sem eflir jákvæða hugsun, eykur vellíðun í daglegu lífi og mörg einkenni streitu og kvíða minnka eða hverfa.
Með því að beina athyglinni alúðlega að líkamanum og augnablikinu hér og nú, þjálfum við hugann og opnum fyrir virka hlustun.
Frætt verður um fjórar stoðir núvitundar, metta hugleiðslu og grunnstefin í Buddha Dharma.
Iðkun núvitundar í yin yoga, hugleiðslu, kyrrðargöngum, íhugun og daglegum athöfnum.
Yoga nidra
Yoga nidra er aðgengileg og áhrifarík iðkun, þú liggur undir teppi, lætur fara vel um þig og nýtur leiðsagnar sem leiðir inní djúpa kyrrð og hvíld.
Tónheilun skapar jafnvægi í orkusviði líkamans og hefur djúpstæð áhrif til heilunar. Kristalskálar mynda saman binaural hljóðbylgjur sem skapa jafnvægi á milli hægra og vinstra heilahvels. Tónbað í hárri tíðni kristalskálanna skapar vellíðan.
Yoga nidra tónheilun er einstaklega áhrifarík leið til að meðhöndla taugakerfið, vinda ofan streitu og spennu og skapa jafnvægi.
Verð
Verð
50.000 - velkomið að skipta greiðslu
Staðfestingargjald 15.000 (ekki endurgreitt)*
*Ef forföll verða af óviðráðanlegum aðstæðum er velkomið að nýta greiðslu sem inneign í Yogavin.
Mörg fagfélög og stéttarfélög styrkja sitt félagsfólk.
Innifalið:
Öll kennsla og leiðsögn
Yin yoga fræðsla og iðkun
Yoga nidra fræðsla og iðkun
Núvitund fræðsla og iðkun
Möntrur
Hádegishressing grænmetisfæði og te yfir daginn.
Kyrrðarstund og kakó
Kyrrðarvakan gefur aðgang að kennaranámi í Yin yoga & núvitund 60 tímar *
Korthafar með áskrift í Yogavin fá 10% afslátt
* Þau sem ljúka kyrrðarvöku geta skráð sig í 60 tíma kennaranám Yin yoga & núvitund., kennt 3 helgar í Yogavin. Verð 150.000.
Leiðbeinanda réttindi
Kyrrðarvakan er opin öllum.
Hún er einnig fyrri lota í 60 tíma kennaranámi
Yin yoga & núvitund kennaranám 60 tímar
NB! Þau sem ekki komast á kyrrðarvökuna 19. feb. geta byrjað kennaranámið á kyrrðarhelgi í Yogavin 14. feb.
NB! Kyrrðarvakan er innifalin í Yoga til heilunar 200 tímar